Valhöll fasteignasala s-588-4477 kynnir vandaða 129,7 fm íbúð á annarri hæð í glæsilegu lyftuhúsi á eftirsóttum stað í Kópavogi . SKIPTI MÖGULEG Á 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ.
Eikarparket og náttúrusteinn á gólfum. Íbúðin skiptist í bjartar stofur með glæsilegu útsýni. Útgengi á stórar suðursvalir úr stofu. Þvotthús innaf eldhúsi flísalagt. Gert er ráð fyrir þremur svefnherbergjum en í dag eru þau aðeins 2 og lítið mál að setja upp millivegg og bæta því þriðja við, vandaðir skápar í herbergjum. Vandað eldhús með fallegri innréttingu og vönduðum tækjum, rúmgóður borðkrókur. Baðherbergi er sérlega rúmgott flísalagt í hólf og gólf með hornbaðkari með sturtuaðstöðu. Upphengt salerni. Handklæðaofn og hægt að setja upp sturtuklefa. Gott sjónvarpshol með með sérsmíðaðri innréttingu. Falleg innrétting á baði með halogen lýsingu. Sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Leiktæki á baklóð. Stutt í glæsilega sundlaug, leik- og grunnskóla ásamt alla þjónustu. Húsið er byggt af BYGG byggingarfélagi Gunnars og Gylfa og er klætt að utan á vandaðan máta. Mjög góð hljóðeinangrun er á milli hæða.
Góður garður með leiktækjum fyrir börnin. ÁHVÍLANDI HAGSTÆTT LÁN VIÐ ÍBÚÐARLÁNASJÓÐ CA. 21 MILLJÓNIR MEÐ 5,1 % VÖXTUM. NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR BÁRÐUR TRYGGVASON Í 8965221, HAFIÐ SAMBAND.