GJALDSKRÁ Valhallar sem gildir frá 15.nóvember 2011
1.0. Almennt um Þóknun.
1.1.
Eftirfarandi gjaldskrá er leiðbeinandi um endurgjald fyrir þjónustu Valhallar og gildir nema um annað hafi verið samið, þá til hækkunar eða lækkunar eftir eðli og magni viðskiptanna.
Þóknunarfjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram. Virðisaukaskattur er síðan 25.5% til viðbótar þóknun samkvæmt gjaldskránni.

1.2.
Ákvörðun þóknunar mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er að, sbr. ákvæði 1. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 34/1986 um fasteigna- og skipasölu, sbr. lög nr. 10/1987. Sé unnið að verki, þar sem ekki er sérstaklega samið um þóknun, skal þóknunin fyrir verkið ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi. Þegar þóknun er ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi skal tímaskrá fylgja reikningi.
Söluþóknun innifelur verðmat fasteignarinnar, gerð söluyfirlits, gerð kauptilboðs, kaupsamnings, kostnaðaruppgjörs og afsals. Fyrir auglýsingar og skjalaöflun greiðist sérstaklega sbr. síðar.

1.3.
Hvar sem þóknun í gjaldskrá þessari er ákveðin í krónutölu, en ekki sem hundraðshluti af verðmæti, er fjárhæð þóknunarinnar grunngjald sem breytist í samræmi við almennar verðlagsbreytingar. Þóknun fyrir unnið verk er miðuð við þá gjaldskrá sem gildir þegar reikningur fyrir verkið er gerður.


2.0. Kaup og sala.

2.1
Sala fasteigna og skipa.
a. Sala fasteigna og skráðra skipa í almennri sölu 2,9 % af söluverði eða samkomulag .
b. Sala fasteigna og skráðra skipa sem eru í einkasölu 2,4 % af söluverði eða samkomulag .
c. Aðstoð og/eða skjalafrágangur við sölu og kaup fasteigna og skráðra skipa 1,5% af söluverði, þó aldrei lægri en kr. 250.000.-
d. Sala félaga og atvinnufyrirtækja 5% af heildarsölu, þ.m.t. birgðir.
e. Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna 3 % af söluverði en þó aldrei lægri en kr. 80.000.-
f. Endursala eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum 1,75 % af söluverði eða samkomulag .
g. Sala sumarhúsa 2,4 - 3 % af söluverði, eða eftir samkomulagi. 
H. Lágmarksþóknun  skal aldrei vera minni en 350.000 + vsk.

Makaskipti.
Við makaskipti er þóknun samkv. því er fram kemur í 2.1 A lið. Hafi önnur hvor eignin hvergi verið til sölu skal þóknun vera 2.4% af söluverði þeirrar eignar eða samkomulag .

Hafi eign sem boðin er í makaskiptum verið í einkasölu hjá öðrum fasteignasala skal sá fasteignasali einn taka söluþóknun vegna þeirrar eignar samkvæmt söluumboði, enda áriti hann og ábyrgist eigin kaupsamning auk þess að koma fram fyrir hönd sinna umbjóðenda í tilboðs og samningsferlinu.


3.0. ÝMIS SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF.

3.1.
Þóknun fyrir að fara yfir og athuga samninga og skjöl við sölu eða kaup fasteigna og skipa eða annarra eigna sem fasteignasali, lögmaður eða annar hefur gert er samkvæmt tímagjaldi.
3.2.
Í þeim tilvikum sem gerð veðleyfa, veðbandslausna, umboða, skuldabréfa og tryggingabréfa tengist ekki kaupsamningsgerð er þóknun kr. 8.000.+ vsk   fyrir hvert skjal með vottun ef við á.
3.3.
Þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar er samkvæmt tímagjaldi eða föstu gjaldi eftir samkomulagi .


4.0. Skoðun og verðmat fasteignar.


Fyrir verðmat á íbúðarhúsnæði sé fasteign ekki sett í sölu reiknast þóknun kr.  20.000.+ vsk.
Fyrir skoðun og skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði sem ekki kemur til sölumeðferðar greiðist 0,1% af verðmatsfjárhæðinni (auk virðisaukaskatts) en þó að lámarki kr. 50.000.- með vsk.


5.0. Þóknun fyrir útleigu fasteigna.

5.1.
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um einstakt íbúðarhúsnæði skal vera eins mánaðar leiga eða samkomulag auk kostnaðar við gagnaöflun.
5.2.
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um atvinnuhúsnæði skal vera eins mánaðar leiga eða samkomulag auk kostnaðar við gagnaöflun.
5.3.
Þóknun fyrir að annast milligöngu um að koma á leigusamningi skal samsvara mánaðarleigu hins leigða auk virðisaukaskatts.
5.4.
Sé leigusamningur gerður til fimm ára eða lengri tíma skal þóknunin samsvara tveggja mánaða leigu auk virðisaukaskatts.

6.0. Eignaumsýsla, skuldaskil og uppgreiðsla lána.

Þóknun fyrir vinnu við eignaumsýslu, gerð samninga um skuldaskil og uppgreiðslu lána er samkvæmt tímagjaldi, sbr. kafla 8.0.

7.0. Ýmis ákvæði.

7.1 KAUPENDAÞÓKNUN (umsýslugjald)
Kaupandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 43,925 ,með vsk fyrir þjónustu fasteignasölunnar sem m.a. innifelur ýmiskonar ráðgjöf og aðstoð fyrir og við kauptilboðsgerð, öflunar greiðslumats, gerð verðmats á fasteign kaupanda (ef þannig háttar), þinglýsingarmeðferð kaupsamnings og afsals og allra veðskjala sem kaupandi greiðir með við kaupsamning og ábyrgð því samfara að þessi skjöl skili sér á rétta staði, aðstoð við veðflutninga (sé þess þörf), lögbundin hagsmunagæsla vegna ýmissa mála sem upp kunna að koma í söluferlinu s.s. vegna gallamála, aflýsing og fl.

7.2
Seljandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 16.000.+ vsk,  vegna öflunar gagna um eignir, svo sem vegna veðbókarvottorða, ljósrit teikninga og ýmissa skjala. Sé eignin ekki seld hjá fasteignasölunni greiðist kr. 10.000. - fyrir öflun gagna.
7.3
Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni.
Netgjald þ.er kr. 10.000. + vsk, greiðir seljandi fasteignasölunni við sölu eignarinnar eða ef eignin er tekin af söluskrá fyrir skráningu eignarinnar á auglýsingamiðla fasteigna ( valholl.is, fasteignir.is og mbl.is)

8.0. Tímagjald.

Tímagjald er kr. 15.000.með vsk.