Ráðgjöf sérfræðings

Nú, þegar góðærið er á enda og tími óhefts aðgangs að lánsfé er liðin. Hefur fasteignamarkaðurinn dregist talsvert mikið saman og breytt um form. Svokölluð makaskipti á eignum eru nú einn aðal viðskiptamátin og það verð sem fasteignir náðu um mitt ár 2007, hefur gefið nokkuð eftir, enda eins og margir sérfræðingar hafa sagt, var ekki full innistæða fyrir þeim verðum sem þá voru í gangi. Í þessum makaskiptum eru oft í gangi aðrar og eithvað hærri tölur en þegar um beinar sölur eru að ræða. Því er mjög mikilvæt að þeir sem um milligöngu annast hafi þá reynslu og þekkingu til að bera að greina eðlilegan verðmismun milli eigna, þannig að báðir aðilar gangi sáttir frá borðinu. Það mátti með e.t.v. einhverjum sanni segja að á árunum 2004-2007 hafi fasteignir selt sjálfar og að það skipti seljendur eiginlega ekki máli hvaða fasteignasala þeir völdu. Nú er öldin önnur, nú þarf reynslumikla og vinnufúsa aðila til að sjá um sölu eigna og eru sölumenn Valhallar í þeim flokki.


Valhöll er fasteignasala sem hefur á 16 árum verið í hópi 5 stærstu fasteignasala landsins. 11 samhentir starfsmenn með samanlagt yfir 130 ára starfsreynslu við fasteignasölu eru á Valhöll, þar af eru 5 löggiltir fasteignasalar og 3 löggiltir leigumiðlarar. Allir meira en tilbúnir til að aðstoða þig við fasteignaumsýslu þína. Valhöll er með árangurstengt launakerfi hjá sölumönnum sínum sem gerir það að verkum að við erum til þjónustu reiðubúnir meðan við erum vakandi. Erum alltaf við síman, líka utan hefðbundins opnunartíma 9-17. Þú getur verið örugg/öruggur um að okkar ráðgjöf er miðuð við að hámarka þína hagsmuni á hverjum tíma miðað við efni og aðstæður.


Ekki hika við að hafa samband. “´Þú hringir – við birtumst – það ber árangur”