Valhöll fasteignasala kynnir:
Hæð og kjallari að Brautarholti 4 er til sölu. Hæðin er samkv fmr 115,fm auk 25,1fm bílskúrs og því alls 140,6fm. Hæðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi og þrjú herbergi. Í kjallara er rúmgott þvottahús og eitt herbergi. Forstofan og eldhúsið er með flísum eins og baðherbergið sem er nýlega tekið í gegn. Holið, stofan og herbergin eru með parketi á gólfi. Úr eldhúsi er gengið út á sólpall sem er mót suðri og einnig er útgangur í svefnherbergi út á svalir. Nýlegt járn er á þaki og suður og austurhliðar er klæddar með báruáli. Úr húsinu er gott útsýni. Lýsing er samkv seljanda. Óskað er eftir til boði í eignina. Einnig er möguleiki að íbúðin fari á yfirtöku lána og greiðslu sölulauna.
Nánari upplýsingar veitir Erlendur Davíðsson löggiltur Fasteignasali á Valhöll fasteignasölu. S:588-4477 erlendur@valholl.is. En sýningu eignar annast Pétur Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík. S: 893-4718 psj@simnet.is