Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, og Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali, sími:693-3356, kynna: Básbryggja, glæsilegt 201,7 fm raðhús á þremur hæðum, með tvöföldum bílskúr á frábærum stað í Bryggjuhverfi.
Nánari lýsing: Aðalinngangur húsins er sjó-meginn, þar er gengið í gegnum sér garð og komið inn í forstofu með hengi og flísum á gólfi, stórt forstofuherbergi með flísum á gólfi, stórir gluggar og hurð út í garð eru á herberginu. Úr garðinum er stutt út að sjónum. Á jarðhæð eru líka þvottarhús með sturtu og tvöfaldur bílskúr, önnur hurðinn er með gönguhurð og því einfalt að koma inn í húsið bakdyrameginn þar sem bílastæðin eru. Niðurlímt parket á stiga, á miðhæðinni eru rúmgott eldhús með fallegri innréttingu og útgengi út á rúmgóðar svalir, þaðan er útsýni yfir sjónn og smábátahöfnina. Á miðhæðinni eru líka gestasnyrting og rúmgóðar stofur. Á efri hæðinni er síðan rúmgott opið sjónvarpsrými, og aðal svefnherbergið með baðherbergi innaf. Stigi upp á milliloft sem notað er sem leikherbergi.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali S. 693-3356 heidar@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 20 ára samfeldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 693-3356
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015, 2016 OG 2017, EN AÐEINS 2,2% FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.