Valhöll fasteignasala kynnir til sölu tvær íbúðir við Skipholt í Reykjavík. Frábært tækifæri fyrir útleigu. Tveir sérinngangar.
Um er að ræða 159,7 fm verslunarhúsnæði á 1.hæð hússins sem breytt hefur verið í tvær ósamþykktar íbúðir. Eitt fasteignanúmer.
Önnur íbúðin er 3ja herbergja og u.þ.b. 90 fm að stærð og hin er 2ja herbergja íbúð sem er u.þ.b. 70 fm að stærð. Sérinngangar í báðar íbúðir.
Íbúðirnar bjóða upp á frábært tækifæri til útleigu, hvort sem það er skammtímaleiga eða langtímaleiga.
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Nánari lýsing: 3ja herbergja íbúðin skiptist í:Anddyri / gang: með flísum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með sturtuklefa og aðstöðu fyrir þvottavél og flísum á gólfi.
Svefnherbergi: 7,9 fm herbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: 13,3 fm herbergi með parketi á gólfi.
Alrými: með fallegu eldhúsi og stofu með parketi á gólfi.
Geymsla: 6,2 fm geymsla með flísum á gólfi innaf eldhúsi.
2ja herbergja íbúðin skiptist í:Anddyri: með flísum á gólfi.
Geymslu / fataskáp
Svefnherbergi: með parketi á gólfi.
Alrými: með eldhúsi og stofu með parketi á gólfi.
Baðherbergi: með sturtuklega, aðstöðu fyrir þvottavél og flísum á gólfi.
Geymsla: innan íbúðar.
Nánari upplýsingar veita:Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.