Valhöll kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt raðhús með innbyggðum bílskúr á frábærum stað í Njarðvík.
-Fallegur frágangur og efnisval.
-Hátt til lofts í flestum rýmum og innfelldri lýsing í alrými.
-Tvö svefnherbergi, þar af rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi inn af.
-Sérþvottahús.
-Gólfhiti er í húsinu.
-Húsið er laust við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir: Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - [email protected]Nánari lýsing:Húsið er skráð 123,5 m2 þar af er innbyggður bílskúr 25,6 m2.
Eignin skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, hol og stór stofa ásamt borðstofu, eldhús, þvottahús og bílskúr. Góð lóð að aftan sem snýr í suður, framlóð er með hellulögðu plani.
Gólfefni eru harðparket að frátöldu forstofu, baðherbergi og þvottahúsi sem er flísalagt. Húsið er upphitað með gólfhita með tölvustýrðu hitakerfi. Nánari lýsing:Gengið er úr forstofu í
alrými sem samanstendur af stofu, borðsofu og eldhúsi. Mjög góð lofthæð er í alrými og er innfelld lýsing. Úr alrými er gengið út um hurð er út á baklóð sem stendur í suður.
Eldhús er opið inn í borðstofu, skilið af með eyju milli borðstofu og eldhúss. Vel skipulögð falleg viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Svefnherbergin eru 2.
Hjónaherbergið er mjög stórt með stóru fataherbergi. Hurð er úr fataherbergi út á baklóð.
Þvottahús er með flísum á gólfi, góð innrétting og innangengt í bílskúr.
Bílskúr er með málningu á gólfi, góð aksturshurð með rafdrifnum hurðaopnara. Búið er að stúka hluta bílskúrs með og setja milliloft af sem auðvelt væri að fella niður veggina en halda millilofti.
Athugið að eignin er teiknuð fjögurra herbergja en hefur verið breytt þannig að eitt herbergjanna hefur verið fellt niður er í dag nýtt undir eldhús og er því alrýmið opið og mjög rúmgott.
HverfiðStapaskóli, einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins hefur tekið til starfa í þessu vaxandi hverfi, steinsnar frá íbúðunum. Stapaskóli er heildstæður skóli, leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð. Þessi nýi skóli mun rúma 600 nemendur. Næstu skref eru að byggja íþróttahús og almenningssundlaug við skólann. Þetta er því skóli fyrir 2 ára og upp úr. Nánari upplýsingar eru á www.stapaskoli.is. Bókasafnið, matsalur, félagsaðstaða og sundlaug mun nýtast sem menningarmiðstöð fyrir hverfið eftir að skóladegi lýkur.
Falleg náttúra er allt um kring og stutt í ýmiskonar útivistarmöguleika.
Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru frá íbúðunum og stutt í alla þjónustu. Mikill uppbygging er á svæðinu og stutt að keyra inn á Reykjanesbraut. Samgöngur til og frá svæðinu er því mjög auðveldar.
Nánari upplýsingar veitir:
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - [email protected]