Valhöll fasteignasala kynnir nýlega og glæsilega 4ra herbergja endaíbúð á 4. hæð (efstu hæð) í nýlegu lyftuhúsi við Naustabryggju 17 í Bryggjuhverfinu við Gullinbrú. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi þar á meðal rúmgóð hjónasvíta, tvö baðherbergi og mikil lofthæð. Bílastæði fylgir í bílakjallara.
Eignin er í heildina skráð 131,5 fm á stærð sem skiptist í 119,6 fm íbúð og 11,9 fm geymslu.
Íbúðin er að hluta til á tveimur hæðum. Neðri hæðin skiptist í forstofu / gang, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Efri hæðin skiptist í vinnurými og hjónasvítu með baðherbergi. Sérgeymsla er í kjallara og vel staðsett stæði í bílakjallara, með möguleika á rafhleðslu fyrir rafmagnsbíl. Búið er að tengja rafmagn við bílastæðið og setja upp grind fyrir rafhleðslustöð. Rafhleðslustöð fylgir ekki með.
Húsið var byggt af ÞG Verk árið 2017 og er því um nýlega eign að ræða. Íbúðin lítur vel út með mikilli lofthæð í stofu, eldhúsi og hjónasvítu. Húsið er klætt að utan með vönduðum ál- og tréklæðingum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Innréttingar frá GKS innréttingum. Harðparket og flísar á gólfum. Þetta er glæsileg íbúð sem vert er að skoða.
Mikil uppbygging á sér stað í hverfinu og á nærliggjandi hverfum eins og má sjá rammaskipulagi um Elliðaárvog og Ártúnshöfða. Áherslur verða lagðar á blandaða byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis með fjölbreyttum grænum svæðum inn á milli. Sjá nánar : https://skipulag.reykjavik.is/hofdinn/wp-content/uploads/2021/03/Hofdinn-nyr-borgarhluti-i-motun.pdf
Nánari lýsing:Neðri hæð:Forstofa / gangur: með fataskáp og parketi á gólfi.
Þvottahús: með þvottasnúrum, flísar á gólfi.
Svefnherbergi 1: 14,5 fm svefnherbergi með fataherbergi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: 10,1 fm svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa: í rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð, parketi á gólfi, gólfsíðir gluggar og útgengi á svalir sem snúa í suð-austur.
Eldhús: með ljósri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, góðu borðplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með innréttingu og efri skápum með speglum, sturtu, handklæðaofn og flísum á gólfi.
Efri hæð:Hjónasvíta: 29,8 fm hjónasvíta með mikilli lofthæð, fataherbergi og baðherbergi með sturtu og flísum á gólfi.
Vinnurými: vinnurými(stigapallur) fyrir framan hjónasvítuna með parketi á gólfi.
Bílastæði: sérbílastæði í bílageymslu merkt 404. Vel staðsett í bílakjallara, rétt hjá inngangi í stigagang og lyftu.
Geymsla: 11,9 fm sérgeymsla í kjallara.
Hjóla - og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
Hússjóður: 22.849 kr.
Nánari upplýsingar veita:Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.