Gullsmári 10, 201 Kópavogur
62.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
90 m2
62.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1995
Brunabótamat
40.450.000
Fasteignamat
56.450.000

Valhöll fasteignasala kynnir vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í Gullsmára 10 í Kópavogi.

Eignin er skráð 90,1 fm á stærð og skiptist í 83 fm íbúð og 7,1 fm geymslu. Að auki eru rúmgóðar vestursvalir sem eru yfirbyggðar en hægt að opna.

Örstutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslun, matsölustaði, heilsugæslu, skóla, leikskóla, strætó og helstu samgönguæðar.

Þak hússins að sperrum var endurnýjað á árunum 2015-2018 og húsið málað að utan. Árið 2022 var lofttúðum bætt við þakið til að auka loftun.

Þetta er góð íbúð miðsvæðis í Kópavogi sem vert er að skoða.

Nánari lýsing:

Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi I: með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi II: með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: með sturtuklefa, innréttingu undir og yfir vask og flísum á gólfi og veggjum.
Stofa: með parketi á gólfi og útgengi á yfirbyggðar vestur svalir.
Eldhús: með ljósri innréttingu með fínu skápaplássi, aðstöðu fyrir uppþvottavél, plássi fyrir borð og flísum á gólfi.
Þvottahús: innanf íbúðir með vinnuborði, skolvaski, hillum og flísum á gólfi.
Geymsla: 7,1 fm sérgeymsla á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg á jarðhæð.
Bílastæði: næg opin bílastæði við húsið.

Húsgjöld: 18.227 kr. á mánuði

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.