Óskar H. Bjarnasen

Employee photo

Mín

saga

Óskar er lögmaður og löggiltur fasteignasali frá árinu 2015. Óskar útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og meistaragráðu (LL.M) í evrópurétti frá Hákólanum í Lundi árið 2013. Einnig hefur hann lokið prófi í verðbrefaviðskiptum. Frá árinu 2014 hefur Óskar starfað við fasteignasölu og ráðgjöf tengdri fasteignarfjármögnun fyrirtækja. Óskar starfaði í fjögur ár við sölu og viðskiptaþróun hjá alþjóðlegu fyrirtæki í Svíþjóð. Óskar er alinn upp í Garðabæ og Kópavogi, á þrjú börn og býr í dag í Garðabæ.  

Hafðu samband við Óskar H. Bjarnasen

Umsagnir

viðskiptavina Óskar H. Bjarnasen

Óskar og Snorri tóku að sér sölu á eign minni á síðasta ári sem hafði verið á sölu í nokkurn tíma. Framganga þeirra í söluferlinu var til mikillar fyrirmyndar og voru vinnubrögð mjög fagmannleg. Þeir seldu eignina hratt og örugglega og var þjónusta Valhallar allt söluferlið framúrskarandi.

Vilborg Ásgeirsdóttir

Óskar hjá Valhöll hefur séð um fasteignaviðskipti fyrir mig og fyrirtækið mitt til margra ára, allt er 100%, frágangur og ALLT.

Sigurður Garðarsson

Ég var mjög ánægður með þjónustu Óskars þegar hann sá um sölu á minni eign á síðasta ári. Óskar var fagmannlegur og veitti aðstoð í gegnum allt ferlið. Ég mæli með Óskari fyrir alla þá sem eru að íhuga sölu eða kaup á fasteignum og myndi án efa nýta mér þjónustu hans aftur.

Þorsteinn Magnússon

Óskar hefur unnið fyrir mig í fjölda verkefna í yfir áratug. Hann er úrræðagóður í flóknum úrlausnarefnum, frábær í mannlegum samskiptum og áreiðanlegur.

Friðjón Rúnar Sigurðsson
Fá tilboð í þjónustu