Snorri Snorrason

Employee photo

Mín

saga

Snorri hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2000 en lauk prófi til löggildingar fasteigna- og skipasala árið 2006. Snorri er fæddur og uppalinn í Eyjafirði en bjó á Höfn í Hornafirði í 30 ára, rak þar fasteignasölu og er með virka fasteignaþjónustu á Hornafirði.  Snorri hefur góða reynslu af sölu jarða, hótela og veitingastaða ásamt hefðbundinni sölu fasteigna. Snorri hefur unnið á Valhöll fasteignasölu frá árinu 2018. Snorri er giftur Heiðu Dís Einarsdóttur, eiga þau þrjá uppkomna syni, fimm barnabörn og búa i Reykjavík.

Hafðu samband við Snorri Snorrason

Umsagnir

viðskiptavina Snorri Snorrason

Snorri er búinn að þjónusta okkur í um 10 ár. Snorri er mjög traustur, áræðinn og vandvirkur í öllum sínum störfum og hefur reynst okkur mjög vel, hvort sem við erum að selja eða kaupa eignir. Okkar samstarf hefur einkennst af gagnkvæmu trausti og heiðarleika, ávalt hefur Snorri veitt okkur framúrskarandi þjónustu.

Steinþór Geirdal

Í gegnum árin höfum við nýtt okkkur þjónustu Snorra Snorrasonar bæði varðandi kaup og sölu á fasteignum. Öll hans þjónusta hefur verið til fyrirmyndar og hann hefur lagt sig fram við að allt standist sem viðkemur fasteignaviðskiptunum. Mælum eindregið með hans þjónsustu íalla staði.

Ari og María

Snorri seldi 4 raðhúsíbúðir sem við byggðum og afhenntum nú í mars 2025. Íbúðirnar eru fyrir 60 ára og eldri og voru öll samskipti milli okkar og kaupanda á byggingartíma í gengum Snorra. Snorri veitti okkur vandaða og góða þjónustu frá fyrsta fundi um byggingaráformin til loka verkefnisins.

Fh. Trésmiðju Hornafjarðar ehf, Jón og Eiríkur Guðmundssynir
Fá tilboð í þjónustu