EIGENDUR VALHALLAR
Valhöll – Traust og reynsla í fasteignaviðskiptum.
Eigendur Valhallar eru Snorri Björn Sturluson og Óskar H. Bjarnasen, sem tóku við rekstri fyrirtækisins 1. mars 2023. Báðir eru þeir reynslumiklir lögfræðingar og löggiltir fasteignasalar með víðtæka þekkingu á íslenskum fasteignamarkaði.
Snorri Björn Sturluson hefur starfað við fasteignasölu síðan 2005. Hann lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013 og meistaraprófi í lögfræði frá sama skóla árið 2015. Árið 2017 hlaut hann málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Snorri hefur jafnframt starfað sem lögmaður, meðal annars með áherslu á mál er varða fasteignir og fasteignagalla.
Óskar H. Bjarnasen hefur starfað í fasteignasölu og ráðgjöf tengdri fasteignafjármögnun fyrirtækja frá árinu 2014. Hann útskrifaðist með BA-próf í lögfræði árið 2006 og meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010. Hann lauk einnig meistaraprófi (LL.M.) í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi árið 2013 og hefur lokið verðbréfaviðskiptaprófi. Óskar býr yfir reynslu af fjögurra ára starfi við sölu og viðskiptaþróun hjá alþjóðlegu fyrirtæki í Svíþjóð.
Við hjá Valhöll leggjum áherslu á fagmennsku, persónulega þjónustu og traust í öllum okkar samskiptum. Við bjóðum þér að hafa samband – hvort sem þú ert að hugsa um kaup, sölu eða fjárfestingu í fasteignum, eða vilt ræða mögulegt samstarf. Komdu í heimsókn og fáðu þér kaffibolla með okkur – við erum alltaf tilbúnir að ræða þín mál.