Gjaldskrá

Söluþóknun

Söluþóknun m.v. einkasölu: 1,5 - 2,5% af söluverði eignar auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 495.000 auk 24% virðisaukaskatts.

Söluþóknun m.v. almenna sölu: 1,75 – 2,5% af söluverði eignar auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 495.000 auk 24% virðisaukaskatts.

Söluþóknun sumarhúsa: 2,5% af söluverði eignar auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 495.000 auk 24% virðisaukaskatts.

Sala félaga og atvinnufyrirtækja: 5% af heildarvirði, þ.m.t. birgðir auk gagnaöflunargjalds. Lágmarksþóknun er kr. 650.000 auk 24% virðisaukaskatts.

Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna: 3% af söluverði bifreiðar auk 24% virðisaukaskatts en þóknun er þó aldrei lægri en kr. 100.000 auk 24% virðisaukaskatts.

Þóknun fyrir að annast milligöngu um og gerð leigusamnings: Þóknun vegna leigusamninga sem gilda í 5 ár eða skemur nemur mánaðarleigu auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun vegna leigusamninga sem gilda lengur en 5 ár er sem nemur leigu tveggja mánaða leigufjárhæðar auk 24% virðisaukaskatts.

Skjalafrágangur

Kostnaður vegna skjalafrágangs eða aðstoð við skjalafrágagn um kaup og sölu er kr. 450.000 að meðtöldum virðisaukaskatti.

Með skjalafrágangi er átt við að fasteignasalan annist allan frágang kaupsamnings, afsals og annarra skjala sem þörf er á enda liggi fyrir samkomulag milli kaupanda og seljanda um verð, greiðslukjör og afhendingu fasteignir.

Gagnaöflunargjald og umsýslugjald

Gagnaöflunargjald seljanda: kr. 74.900.- með virðisaukaskatti.

Með gagnaöflun er átt við margvíslegan útlagðan kostnað sem annars vegar tengist upplýsingaöflun um eignina og hins vegar kostnað seljanda varðandi söluferlið.

Dæmi um útlagðan kostnað vegna eignarinnar eru; veðbókarvottorð, veðbandsyfirlit, fasteignamatsvottorð, eignaskiptasamningar, lóðarsamningar, öll önnur þinglýst skjöl sem og teikningar. Dæmi um útlagðan kostnað varðandi söluferlið eru; vottorð frá hlutafélagaskrá, þinglýsingarkostnaður vegna yfirlýsinga og umboða seljanda og útlagður kostnaður við niðurfellingu kvaða á félagslegum íbúðum.

Ef sækja þarf yfirlýsingar húsfélags til þriðja aðila og greiða skv. gjaldskrá viðkomandi, greiðir seljandi þann kostnað.

Umsýslugjald kaupanda: kr. 79.900.- með virðisaukaskatti.

Gjaldið er vegna kostnaðar s.s. við ráðgjöf, aðstoð við kaupanda vegna kauptilboðs, kaupsamnings, afsals, umsjón með þinglýsingu skjala og fleira.

Ef fasteignasalan leggur út fyrir veðleyfum eða öðrum skjölum hjá lánastofnunum innheimtist sá kostnaður til fasteignasölunnar. 

Verðmat fasteigna

Enginn kostnaður fylgir verðmötum Valhallar sem tengjast söluhugleiðingum seljanda.

a. Skriflegt verðmat á íbúðum er kr. 39.900,- m vsk.

b. Skriflegt verðmat á rað- par- og einbýlishúsum er 49.900,- m vsk.

c. Skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði er samkvæmt sérsamningi milli aðila.

Ljósmyndun

Valhöll hefur milligöngu um úrvals fagljósmyndum á öllum eignum sem koma til sölumeðferðar. Við leggjum ríka áherslu á að öll framsetning sé eins og best verður á kosið. Seljandi greiðir ljósmyndara beint fyrir myndatöku skv. verðskrá Fasteignaljósmyndunar sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði. 

Auglýsingar

Seljandi greiðir eitt fast gjald fyrir auglýsingar og markaðssetningu fasteigna kr. 25.000 m/vsk. Gjaldið er greitt einu sinni en eignin er auglýst þar til hún selst. Gjaldið greiðist aðeins ef eignin selst. Eignin er auglýst á netmiðlum / samfélagsmiðlum og eftir atvikun blöðum þar til að hún selst. Eignin er einnig auglýst á vefsíðum: valholl.is, fasteignir.is, fasteignaleitin.is og mbl.is/fasteignir. Sé óskað eftir sérstakri markaðssetningu er samið um slíkt sérstaklega.

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu