Bugðuleira 6

780 Höfn í Hornafirði

Tilboð
  • 272m²

  • 1 herb.

  • 7 baðh.

  • Höfn í Hornafirði

Valhöll kynnir í einkasölu starfsmannaíbúðir að Bugðuleiru 6 Höfn.  Góð fjárfesting öruggar leigutekjur. Tilboð óskast.

Um er að ræða sölu á einkahlutafélaginu Fauska ehf sem á og rekur starfsmannaíbúðir, ásamt nafni, viðskitavild, lausafé og fasteignum
Fasteignirnar eru 3 eignarhlutar í fjöleignahúsinu Bugðuleiru 6 Höfn og skiptast sem hér segir skv eignaskiptayfirlýsingu:
Matshluti 0101, 109,2 fm, 9,26% í fjöleignahúsinu.
Matshluti 0102, 25,9 fm. 2,42% í fjöleignahúsinu.
Matshluti 0201 137,6 fm. 10,33% í fjöleignahúsinu.
Samtals  272,7 fm og 21%  í fjöleignahúsinu öllu.

Innréttaðar hafa verið 5 studio herbergi ásamt 3 herbergjum með sameiginlegri aðstöðu svo og geymslu.

Studioherbergin eru  með sér baði og eldunaraðstöðu.  4 á efri hæð og 1 á neðri hæð. Parket er á gólfum og  búin húsbúnaði. Böðin eru með hvítum hreinlætistækjum, wc, vaskur og sturtuklefi.
Á efri hæð er sameiginlegt þvottahús með tækjum.

Starfsmannaaðstaðan er  sér á neðri hæð  þar eru 3 herbergi ásamt baði, eldhúsi og miðrými. Parket er á gólfum herbergja og miðrýmis.
Geymslan um 30 fm er sér á neðri hæð með bílskúrshurð. 
Við breytingar á húsnæðinu í starfsmannaíbúðir var mikið lagt upp úr brunavörnum, bæði  í efnisvali og hönnun. Brunakerfi er í húsinu.
Góð aðkoma er að húsinu, malbikað bílaplan, og malarbílaplan á góðri sameiginlegri baklóð sem er fullfrágengin, með skjólgirðingu að hluta.
Húsið er byggt úr steypu og stálgrind og samanstendur af nokkrum eignarhlutum á 2 hæðum og er í húsinu reikin ýmis þjónustufyritæki.

Athygli kaupanda er vakin á því að við eigandaskipti þarf að endurnýja leyfi td frá heilbrigðiseftirliti, brunavörnum ofl.

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Snorri Snorrason löggiltur Fasteignasali S:895-2115, [email protected]. Ertu í fasteignahugleiðingum, viltu selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 24 ára samfeldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hafið samband í síma 895-2115 eða [email protected].

Allar myndir

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu