Sörlaskjól 66

107 Reykjavík (Vesturbær)

89.900.000 Kr.
  • 124m²

  • 3 herb.

  • 1 baðh.

  • Bílskúr

  • Reykjavík (Vesturbær)

Valhöll kynnir: Miðhæð í þrýbýli með bílskúr á einstökum stað við sjávarsíðuna í Vesturbæ Reykjavíkur. Óhindrað sjávarútsýni og rúmgóður bílskúr með góðum gluggum. (Íbúð á jarðhæð/kjallari er einnig til sölu og möguleiki á að sameina eignirnar). 
Samkvæmt HMS er hæðin 81,2 fm íbúð á 2. hæð ásamt 43,3 fm bílsskúrs samtals stærð skv. HMS er 124,5 fm.
Rúmgóður garður í suð-vestur er sameiginlegur og skjólveggir eru nýlegir. Eignin er ekki í samræmi við samþykktar teikningar. 
BÓKIÐ EINKASKOÐUN: eignin er sýnd á sunnudögum eftir samkomulagi. Elín lgf í síma 8993090 eða [email protected]
Komið er upp tröppur frá bílaplani.
Sameiginlegur inngangur með efri hæðinni og hæðin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi. Möguleiki á að bæta við herbergi þar sem borðstofa er núna. ( Það er þannig á teikningu) Parket á gólfum en flísar á baðherbergi. 
Rúmgóð björt stofa og eldhús með glæsilegu sjávarútsýni. Hvít innrétting og stór eyja. Borðstofa innaf holi með glugga. Gott svefnherbergi með skápum. Fallegt baðherbergi, er með hita í gólfi, fín sturtuaðstaða, ljós innrétting og upphengt salerni. Gluggi á baði. 
Bílskúrinn er með rafmagni, heitu og köldu vatni. Nokkuð stórir gluggar eru á bílskúr en hann þarfnast standsetningar.
Þvottahús er sameiginlegt á jarðhæð og er inngangur í það baka til við húsið, bakgarðsmegin.
Forstofa: flísar á gólfi og fatahengi.
Stofa og Eldhús: Opið og bjart rými með einstöku útsýni, parket á gólfi. Stór eyja í eldhúsi, nýlegt með hvítri innréttingu. 
Hjónaherbergi/svefnherbergi: Rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni, walk-in sturtu og glugga.

Farið er að sjá á klæðningu hússins og kominn tími á að endurnýja hana. Bílskúr þarfnast endurnýjunar og lagfæringar við en hann er séreign þessarar hæðar.
Nýlegir gluggar eru í eldhúsi og stofu, sjávar megin, en þar er leki og rakaskemmdir sem þarf að gera við. Eignin þarfnast töluverðra endurbóta og verðlagning á eigninni tekur mið af því.
Frábær staðsetning og útsýni. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsiingar veita Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða [email protected] og Óskar Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected]

Allar myndir

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu