Sörlaskjól 66

107 Reykjavík (Vesturbær)

58.900.000 Kr.
  • 83m²

  • 3 herb.

  • 1 baðh.

  • Reykjavík (Vesturbær)

Valhöll kynnir: Rúmgóð Íbúð við sjávarsíðuna á besta stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er 2ja-3ja herbergja með nýlegu eldhúsi, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með glugga. Öll rými eru rúmgóð og sameiginlegt þvottahús er á hæðinni þar sem hver eigandi er með sína þvottavél. Miðhæðin er einnig til sölu.
Eignin er skráð 83,4 fm skv. HMS. Miklir möguleikar á breyttu skipulagi.
Nánari lýsing: 
Inngangur er frá jarðhæð bakgarðsmegin, en þar er forstofa og einnig gengið inn í þvottahús sem er sameign. 
Þvottahús er sameign og á sömu hæð og íbúðin. Allar 3 íbúðir hússins deila þvottahúsinu og hver er með sínar vélar.
Forstofa: frá forstofu er inngangur inn í íbúðina. 
Hol sem er á upphækkuðum palli. (lagnir eru undir upphækkun) Áður var stigi upp á efri hæðina frá holinu.
Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, gaseldavél  og nýlegum vaski. Rýmið sem nú er eldhús var áður herbergi. Skápur/fataskápur er í eldhúsi, en hann mætti færa. 
Tvö rúmgóð herbergi með fataskápum, annað þeirra getur verið notað sem stofa. Það sést út á sjóinn úr herberginu sem er merkt stofa á teikningu.
Flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni og stóru baðkari. (er merkt herbergi til vinstri á teikningu). Geymsla undir útistiga innan baðherbergis. Gluggi á baði og góðar hirslur í skápum.
Íbúðin er ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Farið er að sjá á klæðningu hússins og kominn tími á að endurnýja hana. 
Nánari upplýsingar veita: Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða [email protected] eða Óskar Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected]

Allar myndir

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu