Stórás 7

210 Garðabær

117.900.000 Kr.
  • 164m²

  • 4 herb.

  • 1 baðh.

  • Bílskúr

  • Garðabær

*BÓKIÐ EINKASKOÐUN* Elín Alfreðsdóttir lgf í síma 8993090 eða [email protected] Virkilega björt og falleg efri hæð í tvíbýli með glæsilegum garði og bílskúr. Eignin er á tveimur pöllum, á efri palli er glæsilegt alrými eldhús, borðstofa og stofa, stórir gluggar á 3 vegu, hátt til lofts og mjög rúmgott. Möguleiki er á að minnka eldhúsið og bæta við þriðja svefnherberginu en í dag eru 2 svefnherbergi og baðherbergi á neðri pallinum, þar er einnig anddyri og innaf anddyri er þvottahús og herbergi með baðkari. Af neðri palli er útgengi út á trépall og þaðan út í glæsilegan garð í góðri rækt. Þar er stór pallur við bílskúrinn og vandað steinborð fylgir. 
Nánari lýsing.
Bílaplan við hlið hússins fyrir framan bílskúr, rúmar allt að 3 bíla.
Komið er að húsinu að framanverðu upp nokkrar tröppur.
Anddyri með flísum á gólfi og stórum fataskáp með rennihurðum. 
Þvottahús með glugga er innaf anddyri og innaf þvottahúsi er svo lítið herbergi með glugga og góðu baðkari.
Hol með gler rennihurð út á pall.
Baðherbergi með glugga er flísalagt í hólf og gólf, og með "walk in" sturtu, hvítri innréttingu með speglaskápum og vegghengdu salerni. Baðherbergi er staðsett á milli svefnherbergja.
Hjónaherbergi með skápum og glugga, parket á gólfi. 
Barnaherbergi með glugga og parket á gólfi.
Frá holi er gengið upp nokkrar tröppur á efri pall.
Eldhús er mjög rúmgott og bjart. Hvít háglans innrétting, vínilparket á gólfi og gólfhiti sem tengdur er við ofn í forstofu. Möguleiki er að gera herbergi í hluta af eldhúsi fyrir þá sem þurfa 3 svefnherbergi.
Borðstofa er með stórum glugga og mjög rúmgóð.
Stofa er mjög rúmgóð og björt. Birtuflæði er í gegnum stofu og borðstofu og svo er líka stór gluggi sem snýr í átt að holi. 
Bílskúr er með gönguhurð og þremur stórum gluggum. Ekki er vatn eða í bílskúr, einungis rafmagnskinding. Gryfja í gólfi. 
Virkilega sjarmerandi sérhæð í tvíbýli á vinsælum stað í Garðabæ. Hátt til lofts og gluggar á fjóra vegu ásamt glæsilegum garði með tveimur pöllum og litlu gróðurhúsi, matjurtagörðum og skjólveggjum.
Stutt í þjónustu á Garðatorgi. 
Frárennsli var nýlega myndað og var í góðu ástandi. (myndir eru til)
Þak var nýlega yfirfarið, ekki er komið ryð í þakplötur að sögn eiganda, en nýlega þétt betur í kringum skorstein of skipt út nöglum sem ryð var komið í.
Hitagrind og lítil sér geymsla er í kjallara en gengið er inní það rými undir útitröppum. Sér hiti er fyrir hæðina. Rafmagn á efri palli var endurnýjað fyrir um 10 árum.
Ekki er starfandi húsfélag í húsinu en Garðabær er eigandi neðri hæðar og samstarf hefur alltaf gengið vel.
Upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða [email protected]

Allar myndir

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu