Sóleyjarimi 13

112 Reykjavík (Grafarvogur)

99.900.000 Kr.
  • 143m²

  • 3 herb.

  • 2 baðh.

  • Reykjavík (Grafarvogur)

Valhöll kynnir glæsilega þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi byggðu árið 2015 við Sóleyjarimi 13 í Grafarvogi. Tvö baðherbergi, bæði með sturtuaðstöðu. Rúmgott alrými. Gólfhiti. Sérafnotareitir að framan og fyrir aftan hús. Sérmerkt bílastæði framan við húsið. Rafhleðslustöðvar fyrir bíla á bílastæði sem íbúar geta nýtt.

Eignin er skráð 143,1 fm á stærð skiptist í 135,2 fm íbúð og 7,9 fm geymslu. Að auki er lítil útigeymsla við hlið inngangsins sem er ekki inn í stærð eignarinnar.

Húsið var málað að utan árið 2025 og lítur vel út.

Þetta er vönduð og glæsileg eign sem vert er að skoða.


Nánari lýsing:
Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergi 1: innaf forstofu með innréttingu, "walk in" sturtu, handklæðaofni og flísum á gólfi.
Eldhús: í rúmgóðu alrými með hvítsprautulakkaðri innréttingu með skápum upp í loft, stórri eyju með helluborði og háfi þar yfir, góðu skápaplássi, granít í borðplötum og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: í stóru alrými sem rúmar stofu, borðstofu og sjónvarpsrými með parket á gólfi og útgengi á hellulagða verönd fyrir framan hús.
Þvottahús: við hlið eldhúss með skápum, skolvaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi.
Hjónasvíta/fataherbergi/baðherbergi:
Hjónaherbergi: með parketi á gólfi. Innangengt í fataherbergi og á baðherbergi (rennihurðir inn í  fataherbergi og baðherbergi).
Fataherbergi: með góðum fatahirslum sem ná upp í loft, opnanlegum glugga og parket á gólfi.
Baðherbergi 2: með "walk in" sturtu, handklæðaofni, innrétting og flísum á gólfi.
Svefnherbergi: rúmgott herbergi með fataskáp, parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðan og afgirta verönd.
Geymsla: 7,9 fm sérgeymsla í kjallara.
Bílastæði: sérmerkt bílastæði fyrir framan hús.
Hjóla- vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.

Hússjóður:
Þessi íbúð er að greiða 20.000 kr. á mánuði.

Nánari upplýsingar veitir:
Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-3090 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Allar myndir

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu