Flyðrugrandi 16

107 Reykjavík (Vesturbær)

59.900.000 Kr.
  • 54m²

  • 2 herb.

  • 1 baðh.

  • Reykjavík (Vesturbær)

Valhöll kynnir: bjarta, fallega og vel skipulagða 54,4 fermetra 2ja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð (gengið upp tvær hæðir frá bílastæðum) með um 17,5 fm skjólsælum suðursvölum og auk í eftirsóttu fjölbýlishúsi við Flyðrugranda í Reykjavík. Sameiginlegt þvottaherbergi fyrir þrjár íbúðir á hæðinni og sér geymsla í kjallara hússins ásamt sameiginlegu leikherbergi. Sameign hússins er öll til fyrirmyndar.

Eignin er nýmáluð og afhendist við undirritun kaupsamnigs.

Nánari upplýsingar veita:
Gylfi Þór Gylfason s. 7704040 löggiltur fasteignasali / [email protected] eða Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða [email protected]

Lýsing eignar:
Forstofa: flísalögð og bæði með fatahengi og skápum. Mosaikflísar á veggjum að hluta í forstofu.
Stofa: rúmbóð, björt, parketlögð og með útgengi á um 17,7 fermetra skjólsælar svalir úr stofu. Mjög gott útsýni er úr stofu og af svölum yfir KR svæðið.
Eldhús: flísa- og parketlagt með miklum og fallegum hvítum og viðarinnréttingum með mosaikflísum á milli skápa.
Svefnherbergi: rúmgott, parketlagt og með fataskápum með rennihurðum.
Baðherbergi: rúmgott, flísalagt í gólf og veggi, góðar innréttingar, vegghengt wc með kassa í vegg og rúmgóður flísalagður sturtuklefi með hertu gleri og innbyggðum blöndunartækjum. Innfelld og óbein lýsing.
Sameiginlegt þvottaherbergi: er á hæðinni og er það nýtt af þeim þremur íbúðum sem eru á hæðinni.
Á 5. hæð hússins (ein hæð upp) er sameiginlegt gufubað með búningsaðstöðu.
Sér geymsla: er í kjallara hússins.
Sameiginlegt herbergi: er í kjallara hússins, stórt og með útgengi á lóð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: er í kjallara hússins.

Framkvæmdir standa yfir við endurnýjun skólp- og frárennslislagna sem og lóðar (á vegum lóðarfélags Flyðrugranda 2-20). Sérstök innheimta hefur staðið yfir vegna þeirra fá því í nóvember 2023 og er hún fyrirhuguð til nóvember 2027 (33.000 kr. á mánuði). Verklok vegna lóðar 12-20 er áætlað 2026 og vegna 2-10 árið 2027.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóttum stað í Vesturbænum þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði KR, sundlaug, verslanir og aðra þjónustu.

Allar myndir

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu