Holtsvegur 13

210 Garðabær

71.400.000 Kr.
  • 83m²

  • 4 herb.

  • 1 baðh.

  • Garðabær

Stór verönd - Stæði í bílageymslu - Sólstofa

Valhöll kynnir fallega og bjarta tveggja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið 2018 á Holtsvegi 9 í Urriðaholtinu í Garðabæ. Stæði í upphitaðri bílageymslu fylgir með. Lyfta er í húsinu. Stór verönd með skjólgirðingu. Björt sólstofa með gólfsíðum gluggum. Góð geymsla við hlið íbúðar. ÞG verk byggði húsið.

Eignin er skráð 83,6 fm á stærð skiptist í 74,9 fm íbúð og 8,7 fm geymslu.

Þetta er rúmgóð og skemmtileg íbúð sem er vert að skoða. 


Smelltu hér til að sjá myndband af íbúðinni.

Nánari lýsing:
Anddyri: með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með "walk in" sturtu, innréttingu, innréttingu undir vaski og speglaskápum fyrir ofan vask, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar á gólfi.
Svefnherbergi: mjög rúmgótt með fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús: í opnu alrými með ljósri innréttingu með fínu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp og parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: í opnu alrými með eldhúsi með parketi á gólfi.
Sólstofa: innaf stofu með gólfsíðum gluggum í tvær áttir, flísum á gólfi og útgengi á stóra timburvernd með skjólgirðingu.
Eldhús: með hvítri innréttingu, góðu borð- og skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og parketi á gólfi.
Geymsla: 8,7 fm sérgeymsla á sömu hæð og íbúð.
Bílastæði: sérbílastæði í upphituðum bílakjallara. 
Hjóla- vagnageymsla: sameiginleg á sömu hæð og íbúð.

Hússjóður:
Í dag er þessi íbúð að greiða 26.030 kr. á mánuði í hússjóð.

Nánari upplýsingar veita:
Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögfræðingur í síma 691-1931 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Allar myndir

Hafðu

samband
Fá tilboð í þjónustu