Urðarbrunnur 92A, 113 Reykjavík (Grafarholt)
154.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
7 herb.
212 m2
154.900.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
107.730.000
Fasteignamat
132.100.000

NÝTT Í SÖLU, URÐARBRUNNUR 92A Glæsilegt 212,3 fm endaraðhús á frábærum stað í Úlfarsárdal í Reykjavík.  Húsið er byggt árið 2022 og er staðsteypt hús á tveimur hæðum, með glæsilegum palli og skjólgirðingum.
Á neðri hæðinni eru eitt herbergi, gestasnyrting, eldhús og stofur, úr stofu er útgengi út á stóran aflokaðan pall sem er með heitum og köldum potti. Á efri hæðinni eru þrjú rúmgóð herbergi, rúmgott sérlega fallegt baðherbergi, þvottarhús og opið sjónvarpsherbergi sem mögulega væri hægt að breyta í herbergi.  Bílskúrinn er svo 26 fm.


Nánara skipulag:
Komið er inn í rúmgott flísalagt hol með góðum skáp. Herbergi með flísum á gólfi og skáp. Gestasnyrting er með flísum á veggjum og gólfi, mjög glæsilegt. Eldhúsið er opið inn í borðstofu með glæsilegri innréttingu frá HTH, eyju, tveimur ofnum og flísum á gólfi, steinn á borðum. Stofan er rúmgóð með flísum á gólfi. Útgengi út á mjög rúmgóðann pall sem snýr í suður, hann er með skjólgirðingum á þrjá vegu og heitum og köldum potti.
Stigi milli hæða með teppi og glerhadriði.  Efri hæðinn skipttist í þrjú rúmgóð herbergi með flísum á gólfi og skápum í öllum.  Baðherbergið er sérlega glæsilegt með stórri sturtu, innréttingu og flísum á veggjum og gólfi.  Opið sjónvarpsrými með flísum á gólfi. Þvottarhús er á efri hæðinni með flísum á gólfi.  Suður svalir eru á efri hæðinni.  Bílskúrinn er 26 fm með epoxy á gólfi.  Gólfhiti er í öllum gólfum. Innfeld lýsing er í öllu húsinu og öll ljós á stýringum.

Um er að ræða nánast nýtt glæsilegt raðhús á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum og möguleika á einu til viðbótar, allar innréttingar og frágangur sérlega glæsilegur. Möguleiki á að taka 4ra - 5- herb. íbúð upp í kaupinn í sama hverfi.
Stutt í skóla og leikskóla, sundlaug, bókasafn og íþróttasvæði Fram.  Stutt í útivistarsvæði í kringum Úlfarsfell, þetta er staður fyrir fjölskyldufólk.


Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fasteignasali í s. 693-3356 og [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;