Valhöll kynnir til sölu virkilega fallegt, vel skipulagt og bjart um 288,0 fermetra einbýlishús á þremur hæðum á 600,0 fermetra skjólsælli lóð. Einstök staðsetning miðsvæðis í Garðabænum.
Stór og skjólsæl viðarverönd til suðurs með skjólveggjum og geymsluskúr á lóðinni. Fallegt útsýni af efri hæð. Stór hellulögð bílastæði á framlóð með hitalögnum undir. Um er að ræða sannkallað fjölskylduhús með 6 svefnherbergjum á grónum og fallegum stað í Garðabæ. Mögulegt er að gera auka íbúðarrými á neðstu hæð hússins með sér inngangi. Bókið einkaskoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögmanni í síma 691-1931 eða á netfanginu [email protected]Lýsing eignar:1. hæð hússins er 104,0 fermetrar að stærð og skiptist þannig:Forstofa: flísalögð og rúmgóð með gólfhita og fataskápum.
Gestasnyrting: inn af forstofu er með glugga, flísalagt gólf og flísaplötur á veggjum, vaskskápar, vegghengt wc og handklæðaofn.
Hol: parketlagt.
Þvottaherbergi: mjög rúmgott, flísalagt og með gluggum. Miklar innréttingar með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, vaskur og skápar.
Búr: inn af þvottaherbergi, flísalagt.
Barnaherbergi I: stórt, parketlagt og með sérsmíðuðum skenk.
Eldhús: stórt, bjart og flísalagt með aðgengi úr holi og borðstofu. Mjög fallegar og vandaðar eikarinnréttingar með flísum á milli skápa, innbyggðum vínkæli, spanhelluborði, blástursofni í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Mjög góð borðaðstaða er í eldhúsi. Eldhús var endurbætt 2011.
Samliggjandi stofur, stórar, bjartar og parketlagðar með útgengi á stóra og skjólsæla viðarverönd til suðurs og þaðan á lóð.
Gengið er upp á efri hæð hússins, sem er 81,7 fermetrar að stærð, um vandaðan viðarstiga úr holi 1. hæðar.Stigapallur: parketlagður.
Barnaherbergi II: parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi III: stórt, parketlagt.
Barnaherbergi IV: parketlagt og stórt með fataskápum.
Hjónaherbergi: parketlagt og rúmgott með útgengi á rúmgóðar svalir til suðurs með skyggni yfir.
Fataherbergi er inn af hjónaherbergi er parketlagt og með innréttingum.
Baðherbergi, með glugga og mjög rúmgott. Flísalagt gólf og veggir, miklar sérsmíðaðar eikarinnréttingar, vegghengt salerni og flísalögð sturta með glerhurð.
Mjög snyrtilegt
geymsluris, er yfir efri hæð hússins og er það með einangruðu lofti og gólfi auk góðrar lýsingar. Farið á geymsluloft um fellistiga í lofti hjónaherbergis.
Kjallari, sem bæði er innangengt í um viðarstiga úr holi 1. hæðar og er einnig með sérinngangi af innkeyrslu er um 105,0 fermetrar að stærð en er bara skráður 59,2 fermetrar skv. Fasteignaskrá.
Lofthæð í kjallara er um 2,55 metrar.Forstofa: flotað gólf.
Gangur: parketlagður og með fataskápum.
Köld geymsla: undir útitröppum.
Tvöfaldur bílskúr: sem innangengt er í af gangi er með rafmótor á annarri hurðinni, góðir gluggar, lökkuðu gólfi með niðurföllum í og góðri innréttingu með vaski.
Innri gangur, parketlagður.
Barnaherbergi V: parketlagt og stórt.
Líkamsræktarrými: stórt, dúklagt gólf, speglar á hluta veggja, flísalögð sturta og innrétting með vaski.
Geymsla: inn af líkamsræktarrými með hillum en í því rými er gert ráð fyrir gufubaði.
Rúmlega 42 fermetra í kjallara hússins er ekki getið í Fasteignaskrá Íslands og það því skráð 244,9 fermetrar að stærð í opinberum skráningum.
Lóðin er 600 fermetrar að stærð með hellulagðri innkeyrslu og mjög stórum hellulögðum gesta bílastæðum og eru hitalagnir undir hellulögðum hluta þar sem bílastæði eru. Steyptir veggir á framlóð og steypt stétt með hitalögnum undir. Á baklóð hússins er stór viðarverönd til suðurs með skjólveggjum, tyrfð flöt, trjágróður og geymsluskúr sem er um 6,0 fermetrar að stærð.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð efst í Mýrunum við opið svæði og stutt er í Flataskóla, Garðaskóla, Sundlaug Garðabæjar, íþróttasvæði Stjörnunnar og verslun og þjónustu á Garðatorginu.Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu [email protected]