Valhöll kynnir: Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð í kjallara í rólegu bakhúsi við Miðtún 74, 105 Reykjavík. Íbúðin er alls 62,1 m².Eign er afhent við undirritun kaupsamnings.Nánari lýsing: Gengið er inn um
sameiginlegt anddyri. Þaðan er gengið inn í íbúðina á flisalagðan gang sem tengir saman önnur rými íbúðarinnar.
Hjónaherbergið er rúmgott með parket á gólfi.
Barnaherbergið er með parket á gólfi.
Eldhús er flísalagt með gólfhita og fallegri eldhúsinnréttingu.
Stofan er stór og með glugga á tveim hliðum. Nýtt parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita að hluta, sturtu og upphengdu klósetti. Nýjar flísar eru á gólfi og þá er einnig nýlega búið að mála sem og endurnýja vask og blöndunartæki.
Gólfefni: Nýtt parket er á stofu og svefnherbergjum. Flísar eru á gangi og eldhúsi.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Endurbætur síðustu ára: - Drenað var fyrir c.a. 7 árum og þá settur dælubrunnur.
- Þakrennur endurnýjaðar og garður tyrfður.
- Tenglar og rofar hafa verið endurnýjaðir.
Nánari upplýsingar veitir: Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu [email protected]